Blikk og Tækni sandspyrna Bíladagar 2026

Blikk og Tækni sandspyrna Bíladagar 2026

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: thoraflosa@gmail.com

Lýsing

Önnur umferð Íslandsmóts í sandspyrnu verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar þann 19. júní næstkomandi. 

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar

Unglingaflokkur (UF) 
Fólksbílar (F)
Útbúnir fólksbílar (ÚF)
Buggybílar (B)
Jeppar (J)
Útbúnir jeppar (ÚJ)
Sérsmíðuð ökutæki (S)
Opinn flokkur (O)

Mótorhjól
Unglingaflokkur (MU)
Unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir (U15)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Fjórhjól (FJ)
Vélsleðar (V)

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

8:30 svæðið opnar

9:00 Mæting keppenda
9:05 Skoðun hefst
9:30 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:45 Keppendafundur
11:00 Tímataka
12:45 Tímatöku lýkur
13:00 Keppni hefst
15:45 Áætluð keppnislok

Barnaflokkur er keyrður í 30 mínutur á meðan að kærufrestur er eða um 16:00

Kærufrestur er í 30 mínutur eftir að bráðabirðaúrslit eru birt.

Verðlauna afhending á sandspyrnu braut við ljósin.

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir

Öryggisfulltrúi: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir

Skoðunarmaður: Baldur Pálsson

Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson

Dómnefnd 1: Valdimar G Valdimarsson

Dómnefnd 2: Vilberg Njáll Jóhannesson

Framkvæmdanefnd:
Þóra Kristín, Hrefna Björg.

Dagsetningar

19. júní 2026 kl: 13:00

Brautir og vegalengdir

Sandspyrnubraut BA
Lýsing: 91,44 m

Tegund/mótaröð

Sandspyrna

Íslandsmeistaramót - 2. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 1. júní 2026 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 14. júní 2026 kl: 17:00

Buggybílar: 12000 kr.-

Fólksbílar: 12000 kr.-

Jeppar: 12000 kr.-

Opinn flokkur bíla: 12000 kr.-

Sérsmíðuð ökutæki: 12000 kr.-

Unglingaflokkur: 6000 kr.-

Útbúnir fólksbílar: 12000 kr.-

Útbúnir jeppar: 12000 kr.-

Flokkar

Buggybílar

Fólksbílar

Jeppar

Opinn flokkur bíla

Sérsmíðuð ökutæki

Unglingaflokkur

Útbúnir fólksbílar

Útbúnir jeppar

SÉRREGLUR Blikk og Tækni sandspyrna Bíladagar 2026 í mótröð Íslandsmeistaramót - 2. umferð
 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Blikk og Tækni sandspyrna Bíladagar 2026.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Sandspyrnubraut BA 91,44 m þann 19. júní 2026. 

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsvegi 13.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Valdimar G. Valdimarsson og Vilberg Njáll Jóhannsson

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur að Hlíðarfjallsvegi 13, Akureyri. 

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá  austri til vesturs. 

4.1.3 Brautin er 91,44 metra (300 fet) löng.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

4.2.2 Hámarkshraði ökutækja í pitt er gönguhraði. 

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Buggybílar
Fólksbílar
Jeppar
Opinn flokkur bíla
Sérsmíðuð ökutæki
Unglingaflokkur
Útbúnir fólksbílar
Útbúnir jeppar

5.1.2 Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki bæði bíla og mótorhjóla.

5.1.3 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2026-06-14 17:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Skráningargjald er kr. 12000 og leggst keppnisskírteini AKÍS ofan á það. 

6.6aSkráningargjald fyrir 12-17 ára er kr. 6000 kr og leggst keppnisskírteini AKÍS ofan á það. 

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni  https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/560 .

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
13.2 Verðlaun í Allt flokkum eru veitt fyrir 1. sæti.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Valdimar G Valdimarsson og Vilberg Njáll Jóhannesson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir.

14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Skráðir þátttakendur