Motul torfæran - Egilsstöðum

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: bjossi0202@gmail.com

Lýsing

Akstursíþróttafélagið Start heldur 3. umferð Íslandsmóts í torfæru 2026 á Ylsgrúsum við Egilsstaði þann 4.júlí 2026.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar. 

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar. 

 

Götubílar - Street legal 

Sérútbúnir - Unlimited 

Sérútbúnir götubílar 

Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni. 

Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2., og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum. 

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á slóðinni: http://nn.is/Fa7k4

Dagskrá

Fimmtudagur 2.júlí 2026 
Rásröð birt á upplýsingatöflu. 

Föstudagur 3.júlí 2026

18:00 Pittur opnar

18:00 - 21:00 Skoðun keppnisbíla hefst við pitt.

Þau ökutæki sem eru mætt og ekki næst að skoða skulu mæta til skoðunar á laugardagsmorgun. 

Laugardagur 4.júlí 2026

07:30 Skoðun keppnisbíla heldur áfram við pitt

08:00 Pittur lokar

08:15 Keppendafundur og brautarskoðun.

9:00 Skoðun lýkur

9:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið.

10:00 Keppni hefst

 Hlé 30 mín (eftir braut nr. 2)

16:00 Áætluð lok aksturs.

16:10 Verðlaunaafhending við stjórnstöð

16:30 Bráðabirgðarúrslit birt

16:45 Kærufrestur hefst

17:15 Kærufrest lýkur

Skipuleggjandi

START

Keppnisstjóri: Björn Jónsson

Öryggisfulltrúi: Ingvar Birkir Einarsson

Skoðunarmaður: Jónas Jónasson

Formaður dómnefndar: Aðalsteinn Símonarson

Dómnefnd 1: Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir

Dómnefnd 2: Davíð Snær Guttormsson

Framkvæmdanefnd:
Ástráður Ási Magnússon, Björn Jónsson og Kristdór Þór Gunnarsson.

Dagsetningar

4. júlí 2026 kl: 10:00

Brautir og vegalengdir

Torfærusvæðið við Egilsstaði
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Torfæra

Íslandsmeistaramót - 3.umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 12. júní 2026 kl: 18:00

Skráningu lýkur: 26. júní 2026 kl: 17:00

Flokkar

Götubílar - Street Legal

Sérútbúnir - Unlimited

Sérútbúnir götubílar - Modified

SÉRREGLUR Motul torfæran - Egilsstöðum í mótröð Íslandsmeistaramót - 3.umferð

SÉRREGLUR Motul Torfæran á Egilsstöðum

Íslandsmeistaramót - 3.umferð

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Motul torfæran á Egilsstöðum og er 3. umferð Íslandsmótsins í Torfæru.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram í Ylsgrúsum við Mýnes á Egilsstöðum þann 4. júlí 2026 kl: 10:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.

1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Start akstursíþróttafélag, til heimilis að Koltröð 13, Egilsstöðum.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ástráður Ási Magnússon, Björn Jónsson og Kristdór Þór Gunnarsson.

3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis Koltröð 13, Egilsstöðum. Netfang aikstart@gmail.com

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað akstursvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.

4.1.2 Þrautirnar eru 6 í hverjum flokki hver 30 - 700 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka.

 

GREIN 4.2 PARC FERMÉ

4.2.1 Allt pittsvæðið telst Parc Fermé.

4.2.1.a Viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistæki í Parc Fermé.

4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.

4.2.2.a Sé ökutæki ekki ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.

4.2.3. Ökutæki skulu vera í Parc Fermé að loknum akstri síðustu þrautar þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit eru birt.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa þeim þrautum sem eknar

verða:

5.1.1.a Götubílar - Street Legal

5.1.1.b Sérútbúnir - Unlimited

5.1.1.c Sérútbúnir götubílar - Modified

5.1.2. Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.2 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is

(http://www.akis.is).

6.3 Skráningu lýkur þann 26. júní 2026 kl. 17:00.

6.4 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.5 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 12000 og felur það í sér:

6.5.1 þátttökurétt í keppninni;

6.5.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

 

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð

Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.

8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2. Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.

8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER

9.1 Keppandi skal merkja ökutæki sitt sjálfur í samræmi við grein 7.1 í Keppnisgreinareglum

AKÍS fyrir torfæru (sjá nánar á slóðinni https://reglur.akis.is/Codes/Torf%C3%A6ra/View

9.2 Um auglýsingar á ökutæki gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ökutæki skulu tilbúin í keppni í rásröð kl 9:55.

10.2.1.a Fyrsti ökutæki er ræst kl 10:00.

10.2.2. Ræst er úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflunni.

10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1 um rásröð í keppnisgreinagreglum AKÍS fyrir torfæru.

10.3.2.a Flokkar eru keyrðir í þessari röð: 1 - götubílar, 2 - sérútbúnir bílar og sérútbúnir götubílar blandað í rásröð.

10.3.3. Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingartöflunni og sitja hann allan.

11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum, http://nn.is/Fa7k4

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA,

grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:

11.4.1.Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.

11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um Torfæra.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar kl. 16:30 , laugardaginn 4.júlí. 2026

12.4 Dómnefnd birtir lokaúrslit keppninnar á upplýsingartöflunni.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt í öllum flokkum fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

13.2 Verðlaun verða veitt fyrir bestu tilþrif keppninnar

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Aðalsteinn Símonarson, sem jafnframt er formaður hennar, Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir og Davíð Snær Guttormsson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Björn Jónsson.

14.2.2 Andri Austmann Guðmundsson

14.2.3 Skoðunarmaður er Jónas Þorgeir Jónasson

14.2.4 Öryggisfulltrúi er Ingvar Birkir Einarsson

14.2.5 Ráslínudómari er Kristján Már Magnússon

14.2.6 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega þar sem sjúkrabíll verður á staðnum ef

upp koma atvik sem krefjast sérhæfðar sjúkra- eða læknisaðstoðar fyrir keppendur,

ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.

14.2.7 Umhverfisfulltrúi er Magnús Ási Ástráðsson

 

GREIN 14.8 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.8.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á

keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

GREIN 14.9 STAÐREYNDADÓMARAR

14.9.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.

 

Skráðir þátttakendur

Nafn Félag Flokkur Keppnistæki Lið
Brynjar Jökull Eliasson START Sérútbúnir götubílar - Modified Klakinn
Jóhann Gunnlaugsson TK Sérútbúnir - Unlimited Bleiki Pardusinn