KING OF THE STREET / OUTLAW KING 2026

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: rafnars@gmail.com

Lýsing

Kvartmíluklúbburinn heldur King of the Street / Outlaw King, bikarmót í áttungsmílu á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 4. júlí 2026.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppnisfyrirkomulag
Áttungsmíla, ræst á jöfnu, Pro Tree ljós
Í götubílaflokki skulu ökutæki vera götuskráð og á skráningarnúmerum - það er horft framhjá dekkjum, pústi, rúðuþurrkum og miðstöð á keppnisdegi.
Raðað er upp í eitt útsláttartré í hverjum flokki eftir viðbragðstíma í einni uppröðunarferð.
Keyrðir verða 5 hringir (12,5km) á hringakstursbrautinni fyrir uppröðunarferðir.
Verðlaunafé hefur verið birt og fer hækkandi eftir fjölda ökumanna.
Ýmis önnur aukaverðlaun verða í keppninni.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

King of the Street - götubílar
SKRÁNINGARSKYLDA OG Á NÚMERUM
(Horft er framhjá dekkjum, pústi, rúðuþurrkum og miðstöð.)
HEADS UP
PROTREE
SECOND CHANCE
UPPRÖÐUM Í TRÉ SKV. VIÐBRAGÐSTÍMA

Outlaw King - ofurbílar
HEADS UP
PROTREE
SECOND CHANCE
UPPRÖÐUM Í TRÉ SKV. VIÐBRAGÐSTÍMA

Verðlaun
Götubílar
Veitt verða bikarverðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti í keppnisflokknum.
Jafnframt verða veitt fleiri verðlaun:
- Hvaða bíll kemst lengst í keppninni eftir vélastærð 8+cyl, 6cyl, 4cyl
- Hvaða 4x4 bíll kemst lengst í keppninni.
- Hvaða jeppi kemst lengst í keppninni.
- Hvaða rafmagnsbíll kemst lengst í keppninni.
Farandbikar sigurvegara sem geymdir verða í félagsheimilinu.
Peningaverðlaun fara eftir fjölda ökumanna í keppninni.

Outlaw King - ofurbílar og óskráðir
Veitt verða bikarverðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti í keppnisflokknum.
Farandbikar sigurvegara sem geymdur verður í félagsheimilinu.
Peningaverðlaun fara eftir fjölda ökumanna í keppninni

Jafnframt verða veitt fleiri verðlaun
Besti 1/8 tími dagsins á bíl með "small tire"
Besti 1/8 tími dagsins á bíl með "big tire"
Besti viðbragðstími bíls í uppröðunarferð.

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

09:00 Mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:45 Keppendafundur
11:00 Æfingaferðir
12:30 Akstur á hringakstursbraut (12,5 km/5 hringir)
13:00 Uppröðunarferðir/tímataka 
14:00 Útsláttarkeppni
17:00 Lokaúrslit birt

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Rafnar Snær Baldvinsson

Öryggisfulltrúi: Ingimundur Helgason

Skoðunarmaður: Árni Már Kjartansson

Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson

Dómnefnd 1: Aron Óskarsson

Dómnefnd 2: Ásta Andrésdóttir

Framkvæmdanefnd:
Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason.

Dagsetningar

4. júlí 2026 kl: 13:00

Brautir og vegalengdir

Kvartmílubrautin
Lýsing:

Spyrnubraut í Kapelluhrauni, Hafnarfirði

Tegund/mótaröð

Áttungsmíla

Skráningargjöld

Skráning hefst: 22. júní 2026 kl: 23:00

Skráningu lýkur: 2. júlí 2026 kl: 17:00

Flokkar

King of the Street - götubílar

Outlaw King - bílar

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra keppenda og starfsmanna

#1 - 22. júní 2026 kl: 13:07
Upplýsingatafla keppninnar

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/Ed43S

Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR
King of the Street / Outlaw King

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir King of the Street 2026 / Outlaw King 2026.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 4. júlí 2026 kl: 13:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 16 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 4 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.

4.1.3 Brautin er 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i King of the Street
5.1.1.a.ii Outlaw King

5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i King of the Street

 

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum http://mot.akis.is.

6.4 Skáningu lýkur 2. júlí kl. 17:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 13.000.

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum
9.2.1.a í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.1.b í framrúðu að ofanverðu horni farþegamegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

10.3.3 Uppröðun að lokinni einni tímtökuferð er skv. "second chance" fyrirkomulagi í öllum flokkum. Raðað er í útsláttartré skv. viðbragðstíma í tímatökuferð.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Ed43S

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Baldvin Hansson, sem jafnframt er formaður hennar, Aron Óskarsson og Ásta Andrésdóttir.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Rafnar Snær Baldvinsson.

14.2.2 Skoðunarmaður er Árni Már Kjartansson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ingimundur Helgason.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Skráðir þátttakendur