Sunnudaginn 23 júlí fer fram önnur umferð íslandsmótsins í tímaati á kvartmílubrautinni
Skráningu lýkur fimmtudaginn 20. júlí kl 23:00
Seinni skráning verður leyfð til laugardagsins 22. júlí kl. 16:00
Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan AKÍS
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka
Keppnistæki:
Öll keppnistæki skulu vera skoðuð og á númerum nema í opnum flokki kappaksturbíla.
Allar tegundir af eldsneyti eru leyfðar.
Keppnisfyrirkomulag í tímaati.
Ræsir skal ræsa keppendur út úr pitti með meira en 10 sekúndna millibili. Lengd brautar ræður hve margir bílar eru á brautinni samtímis. Ef fleiri keppendur eru í flokki en þeir sem komast á brautina samtímis skal skipt í eins marga riðla og þörf er á.
Keppnin skiptist í æfingu og þrjár lotur í hverjum flokki. Æfing (15 mínútur), undanrásir (15 mínútur), niðurskurður (10 mínútur) og úrslit (8 mínútur). Lágmarks kælitími á milli lotna skal vera 15 mínútur. Allir keppendur keppa í undanrásum, sá helmingur (námunda skal upp í næstu sléttu tölu) keppenda sem nær bestum tíma keppir í niðurskurði og þrír hröðustu keppendur í úrslitum. Ef keppendur eru færri en 8 í flokki skal sleppa niðurskurði í undanrásum. Í undanrásum ræður keppnisstjóri rásröð. Í niðurskurði og úrslitum er sá keppandi sem er með besta tímann í lotunni á undan ræstur fyrst, svo sá sem er með næst besta og svo framvegis.
Flokkar:
Skráningarfrestur.
Formlegri skráningu lýkur fimmtudaginn 20. júlí kl. 23:00
Seinni skráning verður leyfð til laugardagsins 22. júlí kl. 16:00 en þá bætast 2.000 kr. við skráningargjaldið
Keppnisgjöld og skráning:
ATH!! skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Keppnisgjald 6.000 kr. innifalið er keppnisskírteini
Við fyrstu skráningu keppenda á bílum á keppnistímabili bætast við 4.000 kr. gjald vegna slysatrygginga ökumanns.
Skráning bíla á AKÍS síðunni:
http://skraning.akis.is/keppni/71
Skráning mótorhjóla fer fram í þessum tengli: