1. umferð Íslandsmóts í drifti 2022
Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar heldur 1. umferð Íslandsmóts í drifti 2022 á Akstursíþróttasvæði AÍH í Kapelluhrauni þann 27.maí og 28. maí 2022.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Ökumenn mega hafa að hámarki 2 aðstoðarmenn með hverju keppnistæki.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Minni götubílaflokkur
Götubílaflokkur
Opinn flokkur
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Föstudagur 27.maí
19:00 Pittur opnar / mæting keppenda
19:15 Skoðun hefst
19:45 Æfing hefst
20:00 Pittur lokar
20:15 Skoðun lýkur
22:00 Æfingu lýkur
Laugardagur 28.maí
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:45 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
12:00 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
15:00 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
AÍH
Viðburðarstjóri: Jökull Ýmir Guðmundsson
Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson
Skoðunarmaður: Ari Halldor Hjaltsson
Formaður dómnefndar: Atli Jóhann Einarsson
Dómnefnd 1: Bragi Örn Hilmarsson
Dómnefnd 2: Sigurður Þór Bjarnason
Frá: 27. maí 2022 kl: 19:00
Til: 28. maí 2022 kl: 15:00
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Drift
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 13. maí 2022 kl: 12:00
Skráningargjald: 12000 kr.-
Skráningargjald hækkar 26. maí 2022: 15000 kr.-
Skráningu lýkur: 26. maí 2022 kl: 23:59
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
Minni götubílaflokkur úrslit:
1. sæti Axel Indriði Einarsson - 115 stig
2. Telma Rut Hafþórsdóttir - 98 stig
3. Aron Ingi Elsuson - 90 stig
Götubílaflokkur úrslit:
1. sæti Húbert Dorozinki - 112 stig
2. sæti Guðlaugur Birkir Jóhannsson - 103 stig
3. sæti Emil Örn Kristjánsson - 88 stig
Opni Flokkur úrslit:
1. sæti Sigurbergur Eiríksson - 110 stig
2. sæti Anton Örn Árnason - 96 stig
3. sæti Hrafkell Rúnarsson - 83 stig
Full úrslit koma síðar.
Keppnisstjóri tilkynnir hér með viðbragðsaðila beggja daga keppnarinnar.
Viðbragðsaðili 27/05: Guðni Sigurðsson
Viðbragðsaðili 28/05: Ómar Ingi
Dómnefnd gerir eftirfarandi breytingar á sérreglum minni götubíla í samráði við keppnisstjóra.
Reglur eru í dag:
GREIN 6.2 MINNI GÖTUBÍLAFLOKKUR
6.2.1 Allar reglur í grein
6.1 gilda um þennan flokk.
6.2.2 Skráningarskyld ökutæki á númerum og með fulla skoðun frá viðurkenndri skoðunarstöð.
6.2.2.a Keppnisstjori getur þó gefið undanþágu frá þessum reglum vegna tjóns sem hefur orðið í keppninni.
6.2.3 Útfærsla á vél- og drifbúnaði er frjáls.
6.2.3.a Hámarks afl er 300 hestöfl við hjól samkvæmt aflmælingu viðurkenndri af AKÍS.
6.2.3.b Dómnefnd er heimilt að láta framkvæma aflmælingu til staðfestingar á hámarks afli telji hún ástæðu til þess.
6.2.3.b.i Keppandi greiðir fyrir mælinguna reynist afl ökutækisins yfir settu hámarki.
6.2.3.b.ii Keppnishaldari greiðir fyrir mælinguna reynist afl ökutækisins innan settra marka.
6.2.4 Allar breytingar á stýrisbúnaði eru leyfðar.
6.2.5 Ökumenn mega ekki keyra fleiri en átta keppnir í flokknum. 6.2.5.a Lendi ökumaður í þremur efstu stigasætum íslandsmótsins í drifti er honum óheimilt að taka þátt í flokknum framar.
6.2.5.a.i Regla 6.2.5.a. á ekki við ef ökumaður er yngri en 17 ára.
6.2.5.b Hafi ökumaður keppt í Götubíla- eða Opnum flokki er honum óheimilt að keyra í flokknum.
6.2.6 Dekk skulu ekki vera breiðari en 225mm.
Sérreglubreyting verður sú að bætt verður við reglu 6.2.7 sem hljómar svo:
"Sé ökutæki ekki á númerum skal keppandi framvísa vottorði fyrir bremsum og stýrisgangi frá viðurkenndri skoðunarstöð"
Fyrir hönd dómnefndar Atli Jóhann Einarsson, Formaður dómnefndar
SÉRREGLUR Íslandsmót í Drifti 2022 - 1.umferð í mótröð Íslandsmeistaramót -
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í Drifti 2022 - 1.umferð
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir drift og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH (850m malbikuð braut)
þann 27.maí frá 19:00-22:00 og 28.maí 2022 kl: 08:00 - 15:00
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, til heimilis að Kapelluhrauni.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Jökull Ýmir Guðmundsson
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagsheimili AÍH.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 LEIÐIN
4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður malbiks braut AÍH.
4.1.3 Leiðin er um það bil 400 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2022-05-25 klukkan 23:59.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 12000
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone Yellow M lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðu að aftan, hægra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Föstudagur 27.maí
19:00 Pittur opnar / mæting keppenda
19:15 Skoðun hefst
19:45 Æfing hefst
20:00 Pittur lokar
20:15 Skoðun lýkur
22:00 Æfingu lýkur
Laugardagur 28.maí
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:30 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
09:15 Skoðun lýkur
09:15 Keppendafundur
09:45 Forkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
12:00 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
15:00 Keppni lýkur, lokaúrslit birt
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu á æfingu.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í útsláttarkeppni ræðst af grein 4.3 í driftreglum 2022.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessari röð: Opinn flokkur, Götubílar og Minni götubílar
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://skraning.akis.is/keppni/upplysingatafla/285.
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Atli Jóhann Einarsson, sem jafnframt er formaður hennar, Bragi Örn Hilmarsson og Sigurður Þór Bjarnason.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Jökull Ýmir Guðmundsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ari Halldór Hjaltason.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari Halldór Hjaltason.
14.2.4 Viðbragðsaðili verður á svæðinu. Hann verður tilkynntur á upplýsingatöflu.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: AÍH
Keppnisgjald: 15000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hubert Dorozinski | AÍH | 112 |
2 | Guðlaugur Birkir Jóhannsson | AÍH | 103 |
3 | Emil Örn Kristjánsson | AÍH | 88 |
4 | Sigmar Freyr Halldórsson | AÍH | 77 |
5 | Hafliði Harðarson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Axel Indriði Einarsson | KK | 115 |
2 | Telma rut Hafþórsdóttir | AÍH | 98 |
3 | Aron ingi elsuson | AÍH | 90 |
4 | Daníel Jökull Valdimarsson | AÍH | 77 |
5 | karl arnar olafsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Sigurbergur Eiríksson | AÍH | 110 |
2 | Anton Örn Árnason | AÍH | 96 |
3 | Fabian Dorozinski | AÍH | 84 |
4 | Hrafnkell Rúnarsson | AÍH | 83 |
5 | Birgir Sigurðsson | KK | 73 |
6 | Árni Freyr Gunnarsson | KK | 67 |
7 | Stefán Þór Gunnarsson | KK | 67 |
8 | Sindri Már Ingimarsson | AÍH | 66 |