Íslands og bikarmót í spyrnu 2023

Íslands og bikarmót í spyrnu 2023

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: einarg@ba.is

Lýsing

Bílaklúbbur Akureyrar heldur 1. umferð Íslandsmóts í spyrnu 2023 á aksturssvæði BA þann 27.Maí 2023

Keppnin er einnig partur af röð bikarmóta í spyrnu 2023, og gilda úrslit hennar einnig til bikarmeistara.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
T flokkur
 T/G 13,90 / 8,70 áttungsmíla
 T/F 12,90 / 8,10 áttungsmíla
 T/E 11,90 / 7,50 áttungsmíla
 T/D 10,90 / 6,90 áttungsmíla
 T/C 9,90 / 6,30 áttungsmíla
 T/B 8,90 / 5,70 áttungsmíla
 T/A Index
DS flokkur
OF flokkur

Mótorhjól
Götuhjól undir 700cc (G-)
Götuhjól yfir 700cc (G+)
Breytt götuhjól (B)
Opinn flokkur (O)

Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1. og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Eftir að úrslit eru ráðin í ofangreindum flokkum er áætlað að keppt sé í Allt flokki bíla og Allt flokki mótorhjóla.

Dagskrá

Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

10:00 Móttaka keppenda hefst

10:15Skoðun hefst

10:45 Pittur lokar

11:30 Skoðun lýkur

11:45Keppendafundur með keppnisstjóra

12:00 Tímatökur hefjast

13:30 Tímatökum lýkur

14:00 Keppni hefst

17:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst

17:30 Kærufresti lýkur

Verðlauna afhending á palli við félagsheimili. Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.

Birt með fyrirvara um fjölda keppenda og þess háttar.

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Einar Gunnlaugsson

Öryggisfulltrúi: Jón Rúnar Rafnsson

Skoðunarmaður: Helgi Garðarsson

Formaður dómnefndar: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir

Dómnefnd 1: Jónas Freyr Sigurbjörnsson

Dómnefnd 2: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir

Dagsetningar

27. maí 2023 kl: 14:00

Brautir og vegalengdir

Spyrnubraut BA
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Spyrna

Íslandsmeistaramót - 1.umferð

BA Bikarmót í spyrnu - 1. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 13. maí 2023 kl: 23:43

Skráningu lýkur: 25. maí 2023 kl: 23:59

Flokkar

*DS flokkur áttungsmíla

*OF flokkur áttungsmíla

MSÍ Breytt götuhjól (B)

MSÍ Götuhjól undir 700cc (G-)

MSÍ Götuhjól yfir 700cc (G+)

MSÍ Opinn flokkur (0)

T/A index

T/B 8,90 / 5,70

T/C 9,90 / 6,30

T/D 10,90 / 6,90

T/E 11,90 / 7,50

T/F 12,90 / 8,10

T/G 13,90 / 8,70

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Dómnefnd - Til: Keppenda

#1 - 25. maí 2023 kl: 20:54
Breytingar starfsfólks

Eftirfarandi breytingar verða á starfsfólki keppninnar:

Keppnisstjóri verður Einar Gunnlaugsson

Öryggisfulltrúi verður Jón Rúnar Rafnsson

Formaður dómnefndar verður Hrefna Waage Björnsdóttir


Skoða allar færslur

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Íslands- og Bikarmót í spyrnu 2022

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar 27.Maí 2023 kl 14:00

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt til Íslandsmeistara í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, Hlíðarfjallsvegi 13 603 Akureyri.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson, Hrefna Waage og Jónas Freyr Sigurbjörnsson

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Bílaklúbbs Akureyrar.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vesturs.

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.

GREIN 4.2 PITTURINN

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i T/G
5.1.1.a.ii T/F
5.1.1.a.iii T/E
5.1.1.a.iv T/D
5.1.1.a.v T/C
5.1.1.a.vi T/B
5.1.1.a.vii T/A
5.1.1.a.viii DS flokkur
5.1.1.a.ix OF flokkur

5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i Götuhjól undir 700cc (G-)
5.1.1.b.ii Götuhjól yfir 700cc (G+)
5.1.1.b.iii Breytt götuhjól (B)
5.1.1.b.iv Opinn flokkur (O)

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Skáningu lýkur 25. Maí kl 23:59

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 10.000 .

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 12:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

10.3.3 Uppröðun að loknum tímtökum er skv. "second chance" fyrirkomulagi í öllum flokkum nema OF en þar er notast við hreinan útslátt.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum.

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Bjarni Hjaltalín og Jónas Freyr Sigurbjörnsson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Hrefna Waage

14.2.2 Skoðunarmaður er Helgi Garðarsson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Jón Rúnar Rafnsson

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

*DS flokkur áttungsmíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hlynur Árnason KK Camaro 1968 0

*OF flokkur áttungsmíla

MSÍ Breytt götuhjól (B)

MSÍ Götuhjól undir 700cc (G-)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Snorri Þórarinsson BA Mótorhjól 115
2 Guðmundur Kári Daníelsson BA Honda VTR 1000 93
3 Heiða Bjarna KK Honda CBR600 81
4 Hulda Siggerður BA Honda cbr600rr 67
5 Gunnlaugur Jónasson KK HONDA CBR600RR 59

MSÍ Götuhjól yfir 700cc (G+)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ólafur Ragnar Ólafsson KK Suzuki Gsxr1000 115
2 Ragnar Á Einarsson KK BMW S1000RR 94
3 Hrannar Ingi Óttarsson BA Kawasaki ZX 10-R 81
4 Sigmar Hafsteinn Lárusson KK BMW S1000rr 68

MSÍ Opinn flokkur (0)

T/A index

T/B 8,90 / 5,70

T/C 9,90 / 6,30

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ottó Páll Arnarson BA Chevrolet Vega 113
2 Ásdís Kristrún Melsted BA 95
3 Halldór Hauksson BA Chevrolet Nova 81
4 Harry Samúel Herlufsen KK 69

T/D 10,90 / 6,90

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Einar Rafn Einarsson
Aðst: Einar Þór Birgisson
BA
BA
Einar Birgisson 114
2 Sævar Páll Stefánsson BA Mercury Comet GT 96
3 Karl óskar Geirsson
Aðst: Sverrir Yngvi Karlsson
BA
BA
Ford mustang 80
4 Haukur Örn Halldorsson BA Camaro 68

T/E 11,90 / 7,50

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Brynjar Nova Kristjánsson
Aðst: Freydís Gunnarsdóttir
BA
BA
10

T/F 12,90 / 8,10

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hafdís Alma Einarsdóttir
Aðst: Einar Gunnlaugsson
BA
BA
116
2 Sigurjón Markús Jóhannsson
Aðst: Jóhann Sigurjónsson
KK
KK
Grand Cherokee srt8 95
3 Sigurður Franciszek Tryggvason Radtke BA Pontiac firebird 79

T/G 13,90 / 8,70

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Pétur friðrik Steinþórsson BA 116
2 Ásthildur Sverrisdóttir BA Rambler American Rogue 1968 94
3 Eyþór Axel Júlíusson
Aðst: Ólafur Ingi Þorgrímsson
BA
BA
80