Torfæruklúbburinn heldur Bikarmót í Torfæru laugardaginn 16. september 2023 á Torfærusvæðinu við Svínavatn.
Keppnin er haldin í samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppnarinnar.
Keppt verður í eftirfarandi í flokkum ökutækja með frávikum skilgreindar í sérreglum keppnarinnar.
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir Götubílar
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veitt verða verðlaun fyrir 1,. 2,. og 3 sæti í öllum flokkum
07:00 Pittur opnar
07:00 Skoðun keppnistækja hefst
09:15 Fundur með keppendum og brautarskoðun
10:15 Skoðun lýkur
10:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið
11:00 Keppni hefst
Hlé 30 mín (eftir braut nr.2 )
16:00 Áætlup keppnislok
16:05 Úrslit birt (kærufrestur hefst)
16:35 Kærufrestur lýkur
16:40 Verðlaunaafhending við pitt.
TK
Viðburðarstjóri: Jóhann Daði Pálmason
Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson
Skoðunarmaður: Benedikt Óskar Ásgeirsson
Formaður dómnefndar: Þorsteinn Jónsson
Dómnefnd 1: Helga Katrín Stefánsdóttir
Dómnefnd 2: Sigfús Þór Sigurðsson
16. september 2023 kl: 11:00
Torfærusvæði í Stangarhyl
Lýsing:
Malarnáma
Torfæra
Bikarmót í Torfæru -
Skráning hefst: 28. ágúst 2023 kl: 10:00
Skráningu lýkur: 6. september 2023 kl: 20:00
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
Bráðarbirgðarúrsilt eru birt kl 16:27 sjá viðhengi
kærufrestur hefst
Dómnefnd
Þorsteinn Jónsson formaður dómnefndar
Hala niður viðhengi
Bráðabirgða úrslit birt kl 16:25 sjá viðhengi
Kærufrestur hefst.
Dómnefnd
þorsteinn Jónsson formaður dómnefndar
Hala niður viðhengi
Sjá viðhengi
Hala niður viðhengi
Sjá viðhengi
Hala niður viðhengi
Sjá viðhengi
Hala niður viðhengi
Sjá viðhengi
Hala niður viðhengi
Sjá stig í viðhengi.
Dómnefnd
Hala niður viðhengi
Sjá stig í viðhengi
Dómnefnd
Hala niður viðhengi
Sjá viðhengi
Dómnefnd
Hala niður viðhengi
Sjá stig í viðhengi
Dómnefnd
Hala niður viðhengi
Öll keppnistæki fá rásheimild
Sjá viðhengi með rásröð Pit Stop torfærunar laugardaginn 16. Sept
Hala niður viðhengi
Hér má sjá keppendalista ásamt rásnúmerum.
Sérútbúnir | |||
Rásnúmer | Nafn | Félag | |
25 | Andri Jamil Ásgeirsson | Raptor | |
408 | Andri Már Sveinsson | Kúrekinn | |
101 | Daniel ingi Danielsson | Green Thunder | |
146 | Einar Magnús Einarsson | Spaðinn | |
70 | Finnur Aðalbjörnsson | Refurinn | |
8 | Grimur Helguson | Brjálaða II | |
115 | Guðmundur Elíasson | Thor | |
191 | Ingi Már Björnsson | Bomban | |
27 | Ingvar Jóhannesson | Víkingurinn | |
71 | Ívar Guðmundsson | Mjallhvít | |
123 | Marino Jonsson | Sleggjan | |
82 | Pétur viðarsson | Skrafurinn | |
127 | Sebastian Már Ingvarsson | Víkingurinn | |
93 | Skúli Kristjánsson | Simbi | |
37 | Sveinn H Friðriksson | Rollan | |
26 | Þorvaldur Björn Matthíasson |
Brjálaða Frænka |
|
Sérútbúnir Götubílar | |||
444 | Óskar Jónsson | Úlfurinn | |
404 | Haukur Birgisson | Þeytingurinn | |
212 | Einar örn reynisson | Ruddinn |
Stofnað var til keppni í mótakerfi Akís þann 28.ágúst kl 10:00, skráningu lauk 6.sept kl 20:00 og eru 19 keppendur skráðir til leiks. |
Framkvæmdarnefnd í samráði við dómnefnd hefur framlengt skráningarfrestinn til miðvikudagsins 6. sept kl 20:00.
Framkæmdanefnd
1.1 Keppnin heitir Bikarmót í Torfæru.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Torfæra og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram í Torfærusvæði við Svínavatn þann 16. september 2023 kl: 11:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 4 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Torfæruklúbburinn, til heimilis að Selfossi.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Sigurður Ingi Sigurðsson, Birgir Brynjólfsson, Páll Skjódal, Sighvatur Fannar, Guðbjörn Grímsson
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis Selfossi
4.1.1 Þrautir liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þáttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðavottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautirnar eru 6 í hverjum flokki, samtals um það bil 70 -800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.2.1 Allt pittsvæðið telst Parc Fermé
4.2.1.a Viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistæki í Parc Fermé.
4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.3 Sé ökutækið ekki í ökuhæfu ástandi skla það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.
4.2.4 Ökutæki skulu vera í PArc Fermé að loknum akstri síðustu brautar þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit eru birt.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa þeim þrautum sem eknar verða:
5.1.1.a Götubílar - Street Legal
5.1.1.b Sérútbúnir - Unlimited
5.1.1.c Sérútbúnir götubílar - Modified
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 2023-09-01 20:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 12000 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
6.7 Leyfilegt er að skrá 2 ökumenn á ökutæki í samræmi við Keppnisgreinareglur fyrir Torfæru 2023, lið 2.1.2.a
7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr.830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.1.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppandi skal merkja ökutækið sitt sjálfur í samræmi við grein 7.1 í Keppnisgreinareglum AKÍS fyrir torfæru.
9.2 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1.a Svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b Svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götubíla;
9.2.1.c Svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla;
9.2.1.d 35 cm á hæð og 25 cm á breidd fyrir alla flokka.
9.3 Þeir keppendur sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá Keppnisráði AKÍS í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.
10.2.1 Bíalr skulu tilbúnir í keppni í rásröð kl 10:55
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl 11:00
10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingartöflu keppnarinnar.
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1 um rásröð í keppnisgreinareglum AKÍS fyrir torfæru.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessari röð: Götubílar, Sérútbúnir bílar, Sérútbúnir Götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum, https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/417.
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um Torfæra.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
13.1.1 Dómnefnd skipa Þorsteinn Jónsson, sem jafnframt er formaður hennar. Nöfn dómnefndar verður birt á upplýsingartöflu keppnarinnar.
14.2.1 Keppnisstjóri er Jóhann Daði Pálmason.
14.2.2 Skoðunarmaður er Guðni Jónsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hafsteinn Kristinsson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.2.6 Nöfn staðreyndardómara verða birt á upplýsingartöflu keppnarinnar fyrir fyrstu ræsingu.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: TK
Keppnisgjald: 12000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Skúli Kristjánsson | AÍNH | 20 |
2 |
Finnur Aðalbjörnsson
Aðst: Hrannar Örn Sigursteinsson |
BA BA |
17 |
3 | Andri Már Sveinsson | TK | 15 |
4 | Marino Jonsson | TK | 12 |
5 | Sebastian Már Ingvarsson | TK | 10 |
6 |
Einar Magnús Einarsson
Aðst: Anton kristinn pétursson |
AÍNH AÍNH |
8 |
7 | Ingi Már Björnsson | TK | 6 |
8 | Ingvar Jóhannesson | TK | 4 |
9 |
Grimur Helguson
Aðst: Kristjan Finnur Sæmundsson |
TK TK |
2 |
10 |
Sveinn H Friðriksson
Aðst: Páll Jónsson |
TK TK |
1 |
11 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 0 |
12 |
Daniel ingi Danielsson
Aðst: Daníel G. Ingimundarson |
TK TK |
0 |
13 | Þorvaldur Björn Matthíasson | TK | 0 |
14 |
Pétur viðarsson
Aðst: Andri dagur stefánssona |
START START |
0 |
15 | Andri Jamil Ásgeirsson | BA | 0 |
16 |
Ívar Guðmundsson
Aðst: Ragnar Skúlason |
BA AÍFS |
0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Einar örn reynisson | AÍH | 20 |
2 | Haukur Birgisson | STIMPILL | 17 |
3 | Óskar Jónsson | AÍNH | 15 |