Torfæruklúbburinn heldur Bikarmót í Torfæru laugardaginn 29. júlí 2023 á Torfærusvæðinu við Svínavatn í Bláskógabyggð.
Keppnin er haldin í samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppnarinnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindar í sérreglum keppnarinnar:
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir Götubílar
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veitt verða verðlaunagripir fyrir 1., 2., og 3 sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
07:00 Pittur opnar
07:00 Skoðun keppnisbílar hefst
09:15 Fundur með keppendum og brautarskoðun
10:15 Skoðun lýkur
10:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið
11:00 Keppni hefst
12:20 Hlé 30 mín (eftir braut nr. 2).
16:00 Áætluð keppnislok
16:05 Úrslit birt (kærufrestur hefst)
16:35 Kærufrest lýkur
16:40 Verðlaunaafhending við pitt
TK
Viðburðarstjóri: Jóhann Daði Pálmason
Öryggisfulltrúi: Hafsteinn Kristinsson
Skoðunarmaður: Sævar Þorgilsson
Formaður dómnefndar: Þorsteinn Jónsson
Dómnefnd 1: Sigfús Þór Sigurðsson
Dómnefnd 2: Sigfús Þór Sigurðsson
29. júlí 2023 kl: 11:00
Torfærusvæði í Stangarhyl
Lýsing:
Malarnáma
Torfæra
Bikarmót í Torfæru -
Skráning hefst: 6. júlí 2023 kl: 20:00
Skráningu lýkur: 25. júlí 2023 kl: 23:00
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
Stig fyrir 6 braut og óstaðfest úrslit kl 16.25
Stig fyrir braut 5
Hala niður viðhengi
Stig fyrir 4 braut
Hala niður viðhengi
Stig fyrir braut 3
Hala niður viðhengi
Stig fyrir braut 2
Hala niður viðhengi
Skoðun er lokið og allir keppnisbílar fá rásheimild án athugasemdar
Dómnefnd
Nöfn staðreyndadómara
Við keppnina starfa eftirfarandi staðreyndardómarar:
Gunnar Gunnarsson þrautadómari
Ólafur Freyr Ólafsson þrautadómari
Kristján Örn Þrastarson þrautadómari
Reynir Örn Helgason ráslínudómari
Sigurður Jónsson tímavörður á pittsvæði
Framkvæmdanefnd
Samkvæmt grein 1.1 í keppnisgreinareglum í Torfæru gefur keppnishaldara svifrúm til að breyta keppnisfyrirkomulagi bikaramóts.
Keppnishaldari mun nýta sér það og mun hafa 6 braut sem BÓNUS BRAUT sem gefur auka stig.
Samkvæmt grein 4.4.2. a eins og hér segir.
4.4.2.a |
Besti tími gefur 50 stig, annar besti tími 25 stig, þriðji besti tími 10 stig. Aðrir fá ekki stig. |
Mun ekki taka gildi þar sem keppnishaldari mun gefa Besta tíma 150 stig, annar besti tími 100 stig, þriðji besti tími 50 stig. Aðrir fá ekki aukastig.
Framkvæmdanefnd
Rásnúmer | Nafn | Bíll |
408 | Andri Már Sveinsson | Kúrekinn |
25 | Atli Jamil Ásgeirsson | Raptor |
37 | Bogi Sigurbjörn Kristjánsson | Rollan |
101 | Daniel Ingi Danielsson | Green Thunder |
77 | Elfar Harðarsson | Katla Turbo |
70 | Finnur Aðalbjörnsson | Refurinn |
131 | Finnur Bárðarson | Kletturinn |
123 | Geir Evert Grìmsson | Sleggjan |
8 | Grimur Helguson | Brjálaða II |
115 | Guðmundur Elíasson | Ótemjan |
8 | Hafsteinn Þorvaldsson | Torfan |
404 | Haukur Birgisson | Þeytingur |
122 | Haukur Þorvaldsson | Sápan |
27 | Ingvar Jóhannesson | Víkingurinn |
38 | Jón Gísli Benónýsson | Móri |
54 | Jón Reynir Andrésson | Thunderbolt |
212 | Jónas Karl Sigurðsson | Ruddinn |
82 | Pétur Viðarsson | Skarfurinn |
93 | Skúli Kristjánsson | Simbi |
90 | Svanur Örn Tómasson | Insane |
7 | Ægir þormar Pálsson | Thor |
60 | Þórður Atli Guðnýjarson | Spaðinn |
26 | Þorvaldur Björn Matthíasson | Brjálaða frænka |
Framkvæmdanefnd
Stofnað var til keppni í mótakerfi Akís þann 6.júlí kl 20:00, skráningu lauk 25.júlí kl 23:00 og eru 23 keppendur skráðir til leiks.
Framkvæmdanefnd
Dómnefnd í þessari keppni eru Þorsteinn Jónsson sem skipar formann dómnefndar, Sighvatur Fannar Nathanaelsson og Sigurður Ingi Sigurðsson.
Framkvæmdarnefnd
1.1 Keppnin heitir Bikarmót í Torfæru.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Torfæra og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram í Torfærusvæði við Svínavatn í Bláskógabyggð, þann 29. júlí 2023 kl: 11:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5. Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 8 skráningar
1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 4 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Torfæruklúbbur Suðurlands, til heimilis á Selfossi
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Guðbjörn Grímsson, Elva Stefánsdóttir, Sigurður Ingi Sigurðsson
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur á Selfossi
4.1.1 Þrautinar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðavottað keppnissvæði að ræða
4.1.2 Þrautirnar er 6 í hverjum flokki, samtals um það bil 70 - 800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.2.1 Allt pittsvæðið telst Parc Fermé.
4.2.1.a Viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistæki í Parc Fermé.
4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.3 Sé ökutækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.
4.2.4 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé að loknum akstri síðustu brautar þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit eru birt.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa þeim þrautum sem eknar verða:
5.1.1.a Flokkur sérútbúinna
5.1.1.b Götubílaflokkur
5.1.1.c Flokkur sérútbúinna götubíla
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 25. júlí kl 23:00
6.5 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 10000 og felur það í sér:
6.5.a þátttökurétt í keppninni;
6.5.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
6.6 Leyfilegt er að skrá 2 ökumenn á ökutæki í samræmi við Keppnisgreinareglur fyrir torfæru 2023, lið 2.1.2.a
7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppandi skal merkja ökutækið sitt sjálfur í samræmi við grein 7.1 í Keppnisgreinareglum AKÍS fyrir torfæru.
9.2 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt, staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1.a svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götubíla;
9.2.1.c svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla:
9.2.1.d 35 cm á hæð og 25 cm á breidd fyrir alla flokka.
9.3 Þeir keppendur sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá Keppnisráði AKÍS í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.
10.2.1 Bílar skulu tilbúnir í keppni í rásröð kl 10:55
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl 11:00
10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingartöflu keppnarinnar.
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1 um rásröð í keppnisgreinagreglum AKÍS fyrir torfæru.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessari röð: Götubílar, Sérútbúnir bílar og sérútbúnir götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum, https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/400.
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinareglum AKÍS fyrir torfæru.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingartöflu keppninnar um leið og stiga- og tímarverðir hafa tekið þau saman.
12.4 Dómnefd birtir lokaúrslit keppnarinnar á upplýsingartöflunni.
12.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa Þorsteinn Jónsson, sem jafnframt er formaður hennar, Nöfn dómnefndar verður birt á upplýsingartöflunni.
14.2.1 Keppnisstjóri er Jóhann Daði Pálmason.
14.2.2 Brautarstjóri er Ólafur Björnsson.
14.2.3 Skoðunarmaður er Sævar Þorgilsson.
14.2.4 Öryggisfulltrúi er Hafsteinn Kristinsson.
14.2.5 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.5.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.6 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.2.7 Nöfn staðreyndardómara verða birt á upplýsingartöflu keppninnar fyrir fyrstu ræsingu.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Skipuleggjandi: TK
Keppnisgjald: 10000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ingvar Jóhannesson | TK | 20 |
2 |
Atli Jamil Ásgeirsson
Aðst: Andri Jamil Ásgeirsson |
BA BA |
17 |
3 |
Finnur Aðalbjörnsson
Aðst: Hrannar Örn Sigursteinsson |
BA BA |
15 |
4 | Geir Evert Grìmsson | TK | 12 |
5 | Skúli Kristjánsson | AÍNH | 10 |
6 | Jón Reynir Andrésson | KK | 8 |
7 | Andri Már Sveinsson | TK | 6 |
8 |
Ægir þormar palsson
Aðst: Þór Þormar Pálsson |
BA BA |
4 |
9 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 2 |
10 |
Elfar Harðarson
Aðst: Elva Stefánsdóttir |
TK TK |
1 |
11 |
Grimur Helguson
Aðst: Kristjan Finnur Sæmundsson |
TK TK |
0 |
12 |
Daniel ingi Danielsson
Aðst: Daníel G. Ingimundarsonn |
TK TK |
0 |
13 |
Svanur Örn Tómasson
Aðst: Aron Ingi Svansson |
TK TK |
0 |
14 |
Pétur viðarsson
Aðst: Andri dagur stefánsson |
START START |
0 |
15 |
Bogi Sigurbjörn Kristjánsson
Aðst: Páll Jónsson |
AÍH TK |
0 |
16 | Haukur Þorvaldsson | TK | 0 |
17 | Þórður Atli Guðnýjarson | AÍNH | 0 |
18 |
Jón Gísli Benónýsson
Aðst: Sævar Benónýsson |
TK TK |
0 |
19 | Þorvaldur Björn Matthíasson | TK | 0 |
20 | Hafsteinn Þorvaldsson | TK | 0 |
21 | Finnur Bárðarson | AÍNH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Jónas Karl Sigurðsson
Aðst: Jónas Karl Sigurðsson |
BA BA |
0 |
2 | Haukur Birgisson | STIMPILL | 0 |