Dagskrá
9.mai Skráning hefst 14:00 keppnisgjald er 40þ fyrir áhöfn
9.mai Dagskrá birt og bann hefst við leiðaskoðun á öllum leiðum, Leyft er að leiðarskoða Djúpavatn en höfum það hóflega og skoða það 2x sitthvoru átt og fer keppnistjórn fram á að keppendur verði heiðarlegir með það.
23.mai Skráningu lýkur klukkan 17:00
24 mai Rásröð birt á facebook síðu AÍFS
29 mai Keppnisskoðun 13:00, Staðsetning skoðunar er uppí AÍFS að smiðjuvöllum 6
29 mai öryggisskoðun og leiðarskoðun um patterson leiðarskoðun verður kl 15. ,Fundur verður með keppendum í skoðunni.
31.mai mæting 08.00, park ferme lokar 08.15 fundur með keppendum, park ferme opnar 08.45
31.mai 09:00 Ræsing fyrsta bíls. Endamark og tilkynning á úrslit á plani Dominos Hafnargata 86
AÍFS
Keppnisstjóri: Atli Már Ragnarsson
Aðstoðarkeppnisstjóri: Garðar Gunnarsson
Öryggisfulltrúi: Sigurður Arnar Pálsson
Skoðunarmaður: Sigurður Arnar Pálsson
Formaður dómnefndar: Tryggvi Magnús Þórðarson
Dómnefnd 1: Ari Halldor Hjaltsson
Dómnefnd 2: Guðmundur Örn Þorsteinsson
31. maí 2025 kl: 08:00
Sérleiðir í rally
Lýsing:
Patterson svæðið
Lýsing:
Rally
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 9. maí 2025 kl: 14:00
Skráningu lýkur: 23. maí 2025 kl: 17:00
Flokkur A
Flokkur B
Flokkur C
Flokkur E - Eindrif-1000 m3
Flokkur E - Eindrif-1400 m3
Flokkur E - Eindrif-X
Flokkur J - Jeppaflokkur
1.1 Keppnin heitir Orkurallý AÍFS 2025 og er 1.umferð Íslandsmótsins í rally 2025.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rally og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram Sérleiðir í rally,Patterson svæðið og nágrenni 31. maí 2025 kl: 08:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1 Aðeins verður keppt í keppnisflokkum sem 2 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Suðurnesja, til heimilis að Smiðjuvellir 6
3.1 Framkvæmdanefnd keppninnar skipa Garðar Gunnarsson
3.1.1 Formaður framkvæmdanefndar er Garðar Gunnarsson.
3.2 Framkvæmdanefndar keppninnar er til heimilis að Smiðjuvellir 6
3.3 Sími framkvæmdanefndar keppninnar er 8967392.
3.4 Netfang framkvæmdanefndar keppninnar er mottaka@bilaroghjol.is .
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
4.1 Heildin
4.1.1 Flokkur A
4.1.2 Flokkur B
4.1.3 Flokkur C - AB Varahlutaflokkur
4.1.4 Flokkur E – Eindrif 1000 m3
4.1.5 Flokkur E – Eindrif 1400 m3
4.1.6 Flokkur E – Eindrif X
4.1.7 Flokkur J – Jeppaflokkur
4.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
5.1 Engin takmörk eru á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppninnar.
5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.
5.4 Skráningu lýkur þann 2025-05-23 17:00:00.
5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 40000
5.6.a Það skal greitt í gegnum rafræna skráningarformið á vef AKÍS um leið og skráð er til keppni.
5.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
5.7.a þátttökurétt í keppninni.
5.7.b keppnisskírteini keppanda og áhafnar, útgefið af AKÍS, ef við á.
6.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 7.1 við mætingu á keppnisstað og hvenær sem þess er krafist á meðan keppni stendur.
7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
7.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
8.1 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/485.
8.1.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.
9.1 Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
9.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.
9.2 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
9.3 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
13.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rally.
13.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
13.3 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar samkvæmt tímaáætlun.
13.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
11.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti yfir heildina.
11.2 Flokkaverðlaun verða tilgreind á upplýsingatöflu keppninnar þegar skráningarfresti lýkur.
GREIN 12.1 DÓMNEFND
12.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Ari Halldor Hjaltsson og Guðmundur Örn Þorsteinsson.
GREIN 12.2 HELSTU STARFSMENN
12.2.1 Brautarstjóri (keppnisstjóri) og formaður framkvæmdanefndar er Atli Már Ragnarsson.
12.2.2 Skoðunarmaður er Sigurður Arnar Pálsson.
12.2.3 Öryggisfulltrúi er Sigurður Arnar Pálsson.
12.2.4 Sjúkrafulltrúi er Sigríður Alma Ómarsdóttir.
12.2.5 Umhverfisfulltrúi er Magnús Ragnarsson.
12.2.6 Starfsmannastjóri er Kristófer V Karlsson .
12.2.7 Tengiliður keppenda er Kristófer V Karlsson .
GREIN 12.3 STAÐREYNDADÓMARAR
12.3.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir ræsingu fyrsta bíls.
13.1 Könnun sérleiða er leyfð þann 9.mai-30.mai, Nánari upplýsingar munu birtar á upplýsingatöflu keppninnar ef þörf verður á.
14.1 Þau svæði sem heimilt verður að gera við ökutæki á verða tilgreind á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun ökutækja.
15.1 Upplýsingar um hindranir til að draga úr hraða ökutækja á sérleiðum koma fram í leiðarbók keppninnar og leiðarlýsingu.
EÐA
15.1 Engar hindranir eru á sérleiðum til að draga úr hraða ökutækja.
16.1 Ofurleiðin í þessari keppni er sérleið nr.4 samkvæmt tímaáætlun.
17.1 Keppnishaldari mun nýta rétt sinn samkvæmt grein 7.3.1 í Keppnisgreinareglum fyrir rally til að selja auglýsingar á ökutæki.
17.2 Þau svæði á ökutækjum sem keppnishaldari hyggst nýta eru Reykjanes .
EÐA
17.1 Keppnishaldari mun ekki nýta rétt sinn samkvæmt grein 7.3.1 í Keppnisgreinareglum fyrir rally til að selja auglýsingar á ökutæki.
Skipuleggjandi: AÍFS
Keppnisgjald: 20000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 1000 kr.-