Stjórnstöð keppninnar: verður í Vélaval í Varmahlíð á meðan á keppni stendur.
Merkingar þjónustubifreiða: Keppendur merki þjónustubifreiðar(service) á keppnisdegi með rásnúmeri viðkomandi áhafnar. Merkja skal með áberandi hætti t.d í hliðarrúður.
Framkvæmdanefnd/keppnisstjórn:
-Keppnisstjóri/brautarstjóri: Benjamín Þór Sverrisson, s: 773 7559, netfang: melkot1@outlook.com
-Starfsmannastjóri og tengiliður keppenda: Laufey Rún Sveinsdóttir, s: 867 3070, netfang: melkot1@outlook.com
-Umhverfisfulltrúi: Laufey Rún Sveinsdóttir, s: 867 3070, netfang: melkot1@outlook.com
-Skoðunarmaður: Kristinn Sveinsson, s: 898 2025, netfang: tjonaskodun@tjonaskodun.is
-Öryggisfulltrúi: Baldur Haraldsson, s: 893 2441, netfang: hendill@simnet.is
Dómnefnd:
Formaður dómnefndar Guðmundur Örn Þorsteinsson
Ari Halldór Hjaltason, s: 772 6862, netfang: halldor1989@gmail.com
Sigurður Arnar Pálsson, s: 8919563, netfang: siggikef@gmail.com
Að keppni lokinni:
Verðlaunaafhending er við Vélaval, strax eftir keppni.
Birt með fyrirvara um villur og ófyrirsjáanlegar breytingar
Ljómarallý í Skagafirði 25.-26. júlí 2025
Dagskrá:
Þriðjudagur 8. júlí - Skráning hefst. Tímaáætlun og leiðalýsing birt með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar. Keppnisgjald er kr. 17.500 - per ökumann. Alls kr. 35.000 á áhöfn.
Engin starfsmannakvöð er í þessari keppni. Keppendur greiða viðbótargjald til AKÍS vegna keppnisskírteina og verða að auki að hafa greitt félagsgjald til síns akstursíþróttafélags.
Þriðjudagur 8. júlí - Reglur um könnun sérleiða (leiðaskoðun) taka gildi. Tilkynna þarf fyrirfram um leiðaskoðun með tölvupósti á netfangið ljomarally2025@gmail.com Þar komi fram hvenær áhöfn hyggst leiðaskoða, svo og númer, litur, og gerð skoðunarbifreiðar. Heimilt er hverri áhöfn að fara tvær ferðir (í hvora átt) um hverja sérleið, þ.e. tvær ferðir í hvora átt um Mælifellsdal og Vesturdal. Gæta skal varúðar og virða umferðarreglur. Brotum á framangreindum takmörkunum verður vísað til dómnefndar.
Laugardagur 19. júlí - Skráningu lýkur kl. 17:00.
Mánudagur 21. júlí - Rásröð birt kl. 22:00.
Fimmtudagur 24. júlí - Starfsmannafundur kl. 20:00 í Vélaval í Varmahlíð.
Föstudagur 25. júlí - Keppnisskoðun kl. 18:00 við Vélaval í Varmahlíð áhafnir fyrstu tíu bíla í rásröð mæta kl. 18:00. Áhafnir þeirra bíla sem eru nr. 11 eða síðar í rásröð mæta kl. 19:00.
Föstudagur 25. júlí - Fundur með keppendum kl. 20:00 við Vélaval í Varmahlíð.
Laugardagur 26. júlí - Skoðun keppnistækja sem fengið hafa athugasemdir við keppnisskoðun (ef þarf) kl. 07:00 við Vélaval í Varmahlíð.
Laugardagur 26. júlí - Park fermé keppnistækja við Vélaval í Varmahlíð kl. 07:30 - 07:45.
Laugardagur 26. júlí - Ræsing kl. 08:00 frá Vélaval í Varmahlíð.
Laugardagur 26. júlí - Endamark við Vélaval í Varmahlíð kl. 15:05. Bráðabirgðaúrslit kynnt 15:35. Kærufrestur hefst og er 30 mínútur
Laugardagur 26. júlí - Verðlaunaafhending: Við Vélaval, strax eftir keppni.
BS
Keppnisstjóri: Benjamín þór sverrisson
Öryggisfulltrúi: Baldur Haraldsson
Skoðunarmaður: Kristinn Valgeir Sveinsson
Formaður dómnefndar: Guðmundur Örn Þorsteinsson
Dómnefnd 1: Ari Halldor Hjaltsson
Dómnefnd 2: Sigurður Arnar Pálsson
Frá: 25. júlí 2025 kl: 00:00
Til: 26. júlí 2025 kl: 00:00
Sérleiðir í rally
Lýsing:
Rally
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 8. júlí 2025 kl: 22:00
Skráningu lýkur: 19. júlí 2025 kl: 17:00
Flokkur A
Flokkur C
Flokkur E - Eindrif-1000 m3
Flokkur E - Eindrif-1400 m3
Flokkur E - Eindrif-X
Flokkur J - Jeppaflokkur
Ljómarallý í Skagafirði 25.-26. júlí 2025 - Sérreglur
3. umferð Íslandsmótsins í Rally 2025
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Ljómarallý í Skagafirði og er 3. umferð Íslandsmótsins í Rally 2025.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinareglum AKÍS fyrir Rally og sérreglum þessum.
1.3 Keppnin fer fram í Skagafirði og nágrenni 25-26. júlí 2025, skv. auglýstri dagskrá.
1.4 Keppnin verður ekki haldin ef færri en tíu (10) skráningar berast fyrir lok skráningarfrests.
1.5 Ljómarallý í Skagafirði 2025 er einn áfangi.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Skagafjarðar.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND / KEPPNISSTJÓRN
3.1 Framkvæmdanefnd / keppnisstjórn:
Keppnisstjóri/brautarstjóri: Benjamín Þór Sverrisson, s: 7737559, netfang: melkot1@outlook.com
Starfsmannastjóri og tengiliður keppenda: Laufey Rún Sveinsdóttir, s: 8673070, netfang: melkot1@outlook.com
Umhverfisfulltrúi: Laufey Rún Sveinsdóttir, s: 8673070, netfang: melkot1@outlook.com
GREIN 4 KEPPNISFLOKKAR
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
4.1 Heild
4.1.1 Flokkur A
4.1.2 Flokkur C
4.1.3 Flokkur E – Eindrif 1000 m3
4.1.4 Flokkur E – Eindrif 1400 m3
4.1.5 Flokkur E – Eindrif X
4.1.6 Flokkur J – Jeppaflokkur
4.2 Ökutæki þurfa standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í til að geta tekið þátt í keppninni.
GREIN 5 SKRÁNING
5.1 Engin takmörk eru á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.
5.4 Skráningu lýkur þann 19. júlí 2025, kl. 17:00
5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 17.500 per/ökumann, samtals kr. 35.000 per/áhöfn. Að auki greiða þátttakendur gjald til AKÍS fyrir keppnisskírteini og félagsgjald til síns akstursíþróttafélags.
5.7 Skráningargjald skal greitt í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS um leið og skráð er til keppni.
5.8 Skráning og greiðsla keppnisgjalds og viðbótargjalds sem AKÍS innheimtir, felur í sér:
a. þátttökurétt í keppninni.
b. keppnisskírteini keppanda og áhafnar, útgefið af AKÍS, ef við á.
GREIN 6 TRYGGINGAR
6.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
6.2 Ökumenn slysatryggja sig að auki, á eigin vegum og eigin forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir við eiga.
GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini við mætingu á keppnisstað og hvenær sem þess er krafist á meðan keppni stendur.
7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
GREIN 8 UPPLÝSINGATAFLA
8.1 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefsvæði keppninnar á vefsíðu AKÍS.
8.2. Á upplýsingatöflu keppninnar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.
GREIN 9 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
9.1 Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á alla keppendafundi á þeim tímum sem auglýstir eru í dagskrá og sitja þá til enda.
9.2 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundi getur það varðað brottvísun úr keppni.
9.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur og eftir atvikum áfrýjun, samkvæmt Reglubók FIA og keppnisgreinarreglum fyrir Rallý.
GREIN 10 ÚRSLIT
13.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rally.
13.2 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar samkvæmt tímaáætlun.
13.3 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur staðfest þau.
GREIN 11 VERÐLAUN
11.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti yfir heildina.
11.2 Fyrir flokka þar sem þátttakendur (áhafnir) eru þrír eða fjórir er veitt viðurkenning fyrir 1. sæti.
11.3 Fyrir flokka þar sem þátttakendur (áhafnir) eru fimm eða fleiri er veitt viðurkenning fyrir 1., 2. og 3. sæti.
GREIN 12 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 12.1 DÓMNEFND
12.1.1 Dómnefnd skipa Guðmundur Örn Þorsteinsson, sem jafnframt er formaður hennar, Ari Halldór Hjaltason og Sigurður Arnar Pálsson
GREIN 12.2 HELSTU STARFSMENN
12.2.1 Keppnisstjóri er Benjamín Þór Sverrisson
12.2.2 Brautarstjóri er Benjamín Þór Sverrisson
12.2.3 Starfsmannastjóri og tengiliður keppenda er Laufey Rún Sveinsdóttir.
12.2.4 Umhverfisfulltrúi er Laufey Rún Sveinsdóttir
12.2.5 Skoðunarmaður er Kristinn Sveinsson
12.2.6 Öryggisfulltrúi er Baldur Haraldsson
GREIN 12.3 STAÐREYNDADÓMARAR
12.3.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir ræsingu fyrsta bíls.
GREIN 13 KÖNNUN SÉRLEIÐA
13.1 Reglur um könnun sérleiða (leiðaskoðun) taka gildi þegar skráningarfrestur hefst, samkvæmt dagskrá keppninnar.
13.2 Tilkynna þarf fyrirfram um leiðaskoðun með tölvupósti á netfangið ljomarally2025@gmail.com. Í tilkynningu komi fram hvenær áhöfn hyggst leiðaskoða, svo og númer, litur og gerð skoðunarbifreiðar.
13.3 Heimilt er hverri áhöfn í leiðaskoðun að fara tvær ferðir (í hvora átt) um hverja sérleið, þ.e. tvær ferðir í hvora átt um Mælifellsdal og Vesturdal. Gæta skal varúðar og virða umferðarreglur.
13.4 Brotum á framangreindum reglum og takmörkunum vegna leiðaskoðunar verður vísað til dómnefndar, viðurlög skv. grein 3.3.7 í keppnisgreinarreglum fyrir Rallý.
GREIN 14 VIÐGERÐIR
14.1 Viðgerðir og þjónusta við keppnistæki er heimil á meðan á keppni stendur nema:
a. Í parc fermé s.s. í tímastöðvum, fyrir ræsingu og á meðan á kærufresti stendur.
b. Milli sérleiða nr. 5 (Vesturdalur 1) og 6 (Vesturdalur 2).
c. Þar sem keppnisreglur bjóða annað.
d. Brotum á framangreindum ákvæðum verður vísað til dómnefndar og getur varðað brottvísun úr keppni.
GREIN 15 OFURLEIÐ
15.1 Ofurleið í Ljómarallý 2025 er sérleið nr. 6, Vesturdalur 2.
GREIN 16 AUGLÝSINGAR
16.1 Keppnishaldari mun nýta rétt sinn samkvæmt grein 7.3.1 og 7.3.2 í keppnisgreinarreglum fyrir rally til að selja auglýsingar á ökutæki.
16.2 Þau svæði sem keppnishaldari hyggst nýta eru á framhurðum keppnistækja.
GREIN 17 SAMSKIPTI
17.1 Allt starfsfólk keppninnar annast verkefni sín í sjálfboðavinnu.
17.2 Starfsfólk skal leitast við að sinna störfum sínum af kostgæfni, með fagmennsku og ánægju allra sem að keppnishaldinu og umgjörð þess koma, að leiðarljósi.
17.3 Keppendum, áhöfnum og aðstoðarfólki þeirra ber að sýna starfsfólki, og öðrum sem tengjast keppnishaldinu og umgjörð þess, virðingu og kurteisi. Óíþróttamannsleg hegðun getur varðað brottvísun úr keppni og/eða öðrum refsingum, sbr. m.a. grein 3.6.7. í keppnisgreinarreglum fyrir Rallý og 12.2.1 í reglum FIA.
Skipuleggjandi: BS
Keppnisgjald: 17500 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 1000 kr.-
Nafn | Félag | Flokkur | Keppnistæki | Lið |
---|---|---|---|---|
Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson |
BÍKR BÍKR |
Flokkur C | Subaru Impreza | |
Jósef Heimir Guðbjörnsson
Aðst: Gunnar Eyþórsson |
BÍKR BÍKR |
Flokkur A | Mitsubishi Lancer Evo VI |