22. Maí – Skráning hefst
Keppnisgjald frá 20.05.23 til 31.05.23 kl. 23:59 er 20.000,- kr. pr. áhöfn + AKÍS gjald
Keppnisgjald frá 01.06.23 til 30.06.23 kl. 23:59 er 40.000 kr. pr. áhöfn + AKÍS gjald
Keppnisgjald frá 01.07.23 til 31.07.23 kl. 12:00 er 60.000 kr. pr. áhöfn + AKÍS gjald
1. júní – Tímamaster birtur með fyrirvara um breytingar
31. júlí – Skráningu lýkur kl. 23:59
15. ágúst – Rásröð birt kl. 10:00 á upplýsingatöflu keppnarinnar og samfélagsmiðlum klúbbsins
16. ágúst – Keppnisskoðun: Staðsetning og tími auglýst síðar
16. ágúst– Keppendafundur: Staðsetning og tími auglýst síðar
16. ágúst – Starfsmannafundur kl. 20:00 í Bíljöfur á Smiðjuvegi 34 (gul gata)
17. ágúst– Keppnisskoðun fyrir þá bíla sem ekki fengu skoðun fer fram. Staðsetning og tími auglýst síðar
18. ágúst – Ræsing fyrsti bíll af stað kl. 17:00
20. ágúst – Keppnislok og bráðabirgðaúrslit birt kl. 16:00
20. ágúst – Verðlaunaafhending. Staðsetning og tími auglýst síðar
BÍKR
Viðburðarstjóri: Kolbrún Vignisdóttir
Öryggisfulltrúi: Atli Jóhann Einarsson
Skoðunarmaður: Þórður Andri McKinstry
Formaður dómnefndar: Aðalsteinn Símonarson
Dómnefnd 1: Kolbrún Vignisdóttir
Dómnefnd 2: Kolbrún Vignisdóttir
Frá: 18. ágúst 2023 kl: 17:00
Til: 20. ágúst 2023 kl: 15:35
Sérleiðir í rally
Lýsing:
Rally
Skráning hefst: 23. maí 2023 kl: 20:06
Forskráningargjald: 10000 kr.-
Almennt gjald frá 1. júní 2023: 20000 kr.-
Skráningargjald hækkar 1. júlí 2023 í 30000 kr.-
Skráningu lýkur: 31. júlí 2023 kl: 12:00
Flokkur A
Flokkur B
Flokkur C - AB Varahlutaflokkur
Flokkur E - Eindrif-1000 m3
Flokkur E - Eindrif-1400 m3
Flokkur E - Eindrif-X
Flokkur J - Jeppaflokkur
1.1 Keppnin heitir Rally Reykjavík 2023 og er 4. umferð Íslandsmótsins í Rally 2023.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinar reglum AKÍS fyrir Rally og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram Suðvesturlandi og nágrenni 18. ágúst 2023 kl: 17:00 til 20. ágúst 2023 kl: 16:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1 Aðeins verður keppt í keppnisflokkum sem 2 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur, til heimilis að Álfheimum 7, 104 Reykjavík.
3.1 Framkvæmdanefnd keppninnar skipa Guðni Freyr Ómarsson, Baldur Arnar Hlöðversson og Bragi Þórðarson.
3.1.1 Formaður framkvæmdanefndar er Guðni Freyr Ómarsson.
3.2 Framkvæmdanefnd keppninnar er til heimilis að Smiðjuvegi 34 gul gata.
3.3 Sími framkvæmdanefndar keppninnar er 845 7087.
3.4 Netfang framkvæmdanefndar keppninnar er gudniw@gmail.com
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
4.1 Heildin
4.1.1 Flokkur A
4.1.2 Flokkur B
4.1.3 Flokkur C - AB Varahlutaflokkur
4.1.4 Flokkur E – Eindrif 1000 m3
4.1.5 Flokkur E – Eindrif 1400 m3
4.1.6 Flokkur E – Eindrif X
4.1.7 Flokkur J – Jeppaflokkur
4.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
5.1 Engin takmörk eru á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.
5.4 Skráningu lýkur þann 31. júlí 2023 kl. 12:00:00.
5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald)
5.6.a er kr. 20.000.- fyrir skráningar mótteknar til og með 31. maí 2023.
5.6.b er kr. 40.000.- fyrir skráningar mótteknar 1. júní til og með 30. júní 2023.
5.6.c er kr. 60.000.- fyrir skráningar mótteknar 1. júlí til og með 31. júlí.
5.6.d skal greitt í gegnum rafræna skráningarformið á vef AKÍS um leið og skráð er til keppni.
5.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
5.7.a þátttökurétt í keppninni.
5.7.b keppnisskírteini keppanda og áhafnar, útgefið af AKÍS, ef við á.
6.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 7.1 við mætingu á keppnisstað og hvenær sem þess er krafist á meðan keppni stendur.
7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
7.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
8.1 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/381.
8.1.a Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.
9.1 Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á alla keppendafundi á þeim tímum sem auglýstir eru í dagskrá og sitja þá til enda.
9.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundi getur það varðað brottvísun úr keppni.
9.2 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
9.3 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
13.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rally.
13.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
13.3 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar samkvæmt tímaáætlum.
13.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
11.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti yfir heildina.
11.2 Verðlaun fyrir flokka verða tilgreind á upplýsingatöflu keppninnar þegar skráningafresti lýkur.
GREIN 12.1 DÓMNEFND
12.1.1 Dómnefnd skipa Aðalsteinn Símonarson, sem jafnframt er formaður hennar, Þórður Bragason og Kolbrún Vignisdóttir.
GREIN 12.2 HELSTU STARFSMENN
12.2.1 Brautarstjóri (keppnisstjóri) og formaður framkvæmdanefndar er Guðni Freyr Ómarsson.
12.2.2 Skoðunarmaður er Þórður Andri McKinstry.
12.2.3 Öryggisfulltrúi er Arnar Ísfeld.
12.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson.
12.2.5 Umhverfisfulltrúi er Magnús Þórðarson.
12.2.6 Starfsmannastjóri er Bragi Þórðarson.
12.2.7 Tengiliður keppenda er Baldur Arnar Hlöðversson.
GREIN 12.3 STAÐREYNDADÓMARAR
12.3.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir ræsingu fyrsta bíls.
13.1 Upplýsingar um takmarkanir á könnun sérleiða verða gefnar út á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímaáætlun (tímamaster) verður gefin út.
14.1 Þau svæði sem heimilt verður að gera við ökutæki á verða tilgreind á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun ökutækja.
15.1 Upplýsingar um hindranir til að draga úr hraða ökutækja á sérleiðum koma fram í leiðarbók keppninnar og leiðarlýsingu.
16.1 Ofurleiðin í þessari keppni er sérleið nr. 21 Djúpavatn Norður B samkvæmt tímaáætlun.
17.1 Keppnishaldari mun nýta rétt sinn samkvæmt grein 7.3.1 í Keppnisgreinar Reglum fyrir rally til að selja auglýsingar á ökutæki.
17.2 Þau svæði á ökutækjum sem keppnishaldari hyggst nýta eru framhurðum ökutækja. Sjá nánar um auglýsingar í AB Varahlutaflokki.
Skipuleggjandi: BÍKR
Keppnisgjald með ungliðaafslætti: 10000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Nafn | Félag | Flokkur |
---|---|---|
Almar Viktor Þórólfsson
Aðst: Vigdis Pála Þórólfsdottir |
AÍFS AÍFS |
Flokkur C - AB Varahlutaflokkur |
Guðmundur Orri McKinstry
Aðst: Þorvaldur Smári McKinstry |
BÍKR AÍH |
Flokkur J - Jeppaflokkur |
Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson |
BÍKR BÍKR |
Flokkur C - AB Varahlutaflokkur |
Stefán Hansen Daðason
Aðst: Bjarki Blöndal |
BÍKR BÍKR |
Flokkur C - AB Varahlutaflokkur |
Jóhann Ingi Fylkisson
Aðst: Heiða Karen Fylkisdóttir |
AÍH AÍH |
Flokkur B |
Birgir guðbjörnsson
Aðst: Daníel Jökull Valdimarsson |
AÍH AÍH |
Flokkur A |
Kristinn Valgeir Sveinsson
Aðst: Björgólfur bersi kristinsson |
AÍH AÍH |
Flokkur J - Jeppaflokkur |
Daniel Victor Herwigsson
Aðst: Úlfar Alexandre Rist |
BÍKR BÍKR |
Flokkur C - AB Varahlutaflokkur |
Daníel Sigurðarson
Aðst: Erika Eva Arnarsdóttir |
AÍH AÍH |
Flokkur A |
Valdimar Jón Sveinsson
Aðst: Adam Máni Valdimarsson |
AÍH AÍH |
Flokkur C - AB Varahlutaflokkur |
Hlöðver Baldursson
Aðst: Jón Óskar Hlöðversson |
BÍKR BÍKR |
Flokkur C - AB Varahlutaflokkur |
Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Valgarður Davíðsson |
BÍKR BÍKR |
Flokkur C - AB Varahlutaflokkur |
Jósef Heimir Guðbjörnsson
Aðst: Sævar Sigtryggsson |
BÍKR BÍKR |
Flokkur B |
Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Bergþóra Káradóttir |
AÍFS AÍFS |
Flokkur B |
Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Emil Hreiðar Björnsson |
BÍKR BÍKR |
Flokkur B |
Gunnar Karl Jóhannesson
Aðst: Ísak Guðjónsson |
AÍH BÍKR |
Flokkur A |
Birgir Kristjánsson
Aðst: Karítas Birgisdóttir |
AÍH AÍH |
Flokkur E - Eindrif-1000 m3 |
Gedas Karpavicius
Aðst: Titas Kauneckasa |
AÍH AÍH |
Flokkur A |
Þórður Guðni Ingvason
Aðst: Anton Líndal Ingvason |
BS KK |
Flokkur E - Eindrif-1000 m3 |
Vikar Karl Sigurjónsson
Aðst: Hanna Rún Ragnarsdóttir |
AÍFS AÍH |
Flokkur C - AB Varahlutaflokkur |
Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Sigurjón Þór Þrastarson |
BÍKR AÍFS |
Flokkur B |